Lög NFB

Lög NFB.
1.    Almenn ákvæði.

1.1.   Félagið heitir Nemendafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti, skammstafað NFB.
1.2.   Lögheimili og varnarþing félagsins er að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Austurbergi 5, 111 Reykjavík
1.3.   Félagar eru allir og einungis þeir nemendur sem stunda nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og hafa greitt nemendafélagsgjöldin.
1.4.   Félagið er í;
1.4.1.       Sambandi íslenskra framhaldsskólanema (SÍF)
1.5.   Einkenni og merki
1.5.1.       Einkennislitir félagsins skulu vera gulur og svartur.
1.5.2.       Merki NFB skal vera átta línur sem mynda bókstafina NFB.
2.     Tilgangur og markmið.
2.1.   Markmið félagsins.
2.1.1.       Að auka lýðræðisvitund félaga sinna.
2.1.2.       Að gæta hugsmuna félaga sinna.
2.2.   Tilgangur félagsins.
2.2.1.       Að halda uppi fjölbreyttri félagsstarfsemi.
2.2.2.       Að annast og skipuleggja sölustarfsemi í skólanum.
2.2.3.       Að vinna að uppgangi Fjölbrautaskólans í Breiðholti á sem flestum sviðum.
3.      Aðalfundur.
3.1.   Aðalfundur félagsins er æðsta vald félagsins.
3.2.   Aðalfund skal halda eftir kosningar.
3.3.   Rétt til setu á aðalfundi félagsins með kosningarétt eru allir meðlimir NFB sem hafa lokið að minnsta kosti einni önn, nema viðkomandi sé nýnemi sem hefur verið tekinn í nefnd eða gegnir öðru embætti.
3.4.   Helstu aðalfundarstörf eru:
3.4.1.       Kosning fundarstjóra og ritara.
3.4.2.       Skýrsla nemendaráðs.
3.4.3.       Skýrsla nefnda.
3.4.4.       Ályktanir.
3.4.5.       Lagabreytingar
3.4.6.       Að nemendafélagið ákveði nemendafélagsgjöld.
3.4.7.       Önnur mál.
3.5.   Til aðalfundar skal boða á heimasíðu NFB og auglýsingatöflum félagsins með minnst viku fyrirvara.
3.6.   Ályktanir á aðalfundi eru stefnumarkandi fyrir nemendaráð og skal nemendaráð framfylgja þeim eftir fremsta megni.
3.7.   Nemendaráð sér um að boða aukaaðalfund með sama hætti og aðalfund. Rétt til setu á aukaaðalfundi á Allsherjarráð auk meðlima NFB.
3.8.   Til þess að aðalfundur og/eða aukaaðalfundur sé löglegur skal helmingur Allsherjarráðs vera mættur.
4.      Nemendaráð
4.1.   Nemendaráð er framkvæmdarstjórn félagsins og fer með æðsta vald milli aðalfunda. Þá sér það um daglegan rekstur félagsins og gætir þess að lögum þess sé framfylgt. Ekki er hægt að gera bindandi samninga fyrir hönd NFB nema með samþykki nemendaráðs og félagsmálastjóra.
4.2.   Í nemendaráði eiga sæti: Formaður, varaformaður, skemmtanastjóri og gjaldkeri.
4.3.   Nemendaráð skal halda fundi eigi sjaldnar en vikulega.
4.4.   Komi upp almenn óánægja í Allsherjarráði, með ákvörðun nemendaráðs, skal nemendaráð endurskoða ákvörðun sína með tilliti til vilja meirhlutans.
4.5.   Nemendaráð áskilur sér rétt til að víkja embættismönnum innan NFB úr stöðum sínum ef 80% mætingarskyldu á fundi er ekki fullnægt. Ef mæting er komin undir 50% er viðkomandi vikið úr nefnd. Einnig ef gróf brot hafa verið framin af viðkomandi.
4.6.   Nemendaráðsmeðlimum er óheimilt að setja sig í ábyrgðarstöðu annars staðar sem gæti tekið tíma frá nemendafélagsstörfum, t.d. sem leikara í árshátiðarleikriti.
4.7.   Formaður
4.7.1.       Formaður sér um að kveða nemendaráð og allsherjaráð til funda og stýra þeim.
4.7.2.       Formaður kemur fram sem fulltrúi og talsmaður nemenda utan skólans sem innan.
4.7.3.       Formaður situr í skólanefnd.
4.7.4.       Formaður situr í skólaráði.
4.7.5.       Formaður situr í félagsstarfanefnd.

4.7.6.    Formaður NFB skal ávarpaður sem Keisari.
4.8.       Varaformaður.
4.8.1.       Varaformaður er staðgengill formanns.
4.8.2.       Varaformaður er fyrsti maður til að aðstoða nefndir ef þörf krefur og vera tengiliður nefnda við nemendaráð.
4.8.3.       Varaformaður sér einnig um að skipuleggja allar ferðir undir formerkjum NFB.
4.8.4.       Varaformaður situr skólaráðsfundi ásamt formanni. Í fjarveru formanns eða varaformanns á skólaráðsfundi mætir skemmtanastjóri í staðinn.
4.8.5.       Varaformaður er fulltrúi nemenda í skólaráði.
4.8.6.       Varaformanni ber að gæta hagsmuna nemenda og styðja þá í þeim málum sem þeir eiga á við stjórn skólans.
4.8.7.       Varaformaður er trúnaðarmaður nemenda og skal sjá um hagsmuna þeirra sé alls staðar gætt.
4.8.8.       Varaformaður skal vera til taks fyrir nemendur þegar þeir þurfa á honum að halda. Upplýsingar um hann verða sýnilegar m.a. á www.nfb.is, þ.e.a.s. tölvupóstur og símanúmer.
4.8.9.       Varaformaður sér um að taka við upplýsingum um fjarvistir nefndameðlima sem þeir hafa hlotið vegna starfs á vegum NFB og koma þeim til skólameistara og/eða aðstoðarskólameistara.

4.8.10.    Varaformaður NFB skal ávarpaður sem Keisaraynja.
4.9.   Skemmtanastjóri.
4.9.1.       Skemmtanastjóri hefur yfirumsjón með öllum skemmtunum á vegum NFB.
4.9.2.       Skemmtanastjóri starfar sem formaður skemmtinefndar.
4.9.3.       Skemmtanastjóri skal einnig aðstoða nefndir ásamt varaformanni.
4.9.4.       Skemmtanastjóri er staðgengill bæði formanns og varaformanns á skólaráðsfundum.
4.10.      Gjaldkeri.

4.10.1.      Gjaldkeri skal sjá um að gera fjárhagsáætlun fyrir haustönn og vorönn.

4.10.2.      Gjaldkeri skal vera með yfirumsjón yfir miðasölu NFB og er ábyrgur fyrir þeim nefndameðlimum sem þar eru.

4.10.3.      Gjaldkeri er tengiliður nemendaráðs við rekstrarstjóra F.B. og sér um að koma öllum nótum og kvittunum til rekstrarstjóra.

4.10.4.      Gjaldkeri sér um endurgreiðslu nemendafélagsgjalda í samráði við rekstrarstjóra FB.

4.10.5.      Gjaldkeri er staðgengill skemmtanastjóra á skólaráðsfundum.

4.10.6.      Gjaldkeri skal aðstoða varaformann og skemmtanastjóra við skipulagningu viðburða NFB.

5.      Allsherjarráð.
5.1.   Allsherjarráð samanstendur af nemendaráði, formönnum og félögum nefnda.
5.2.   Allsherjarráð þjónar þeim tilgangi innan NFB að samhæfa starfsemi nemendaráðs og nefnda.
5.3.   Allsherjarráð skal halda fundi minnst einu sinni á önn.
5.4.   Mál nefnda skulu tekin fyrir á allsherjarráðsfundum en lokaákvörðun skal tekin af nemendaráði í samráði við nefndir sem eiga þar að máli.
5.5.   Á fundum allsherjarráðs skulu allar nefndir leggja fram dagskrá yfir fyrirhugað starf komandi mánaðar og skal dagskrá síðasta mánaðar yfirfarin. Skal nemendaráð sjá til þess að dagskránni sé framfylgt.
5.6.   Öllum meðlimum allsherjarráðs er hvenær sem er frjálst að óska eftir fundi og skal nemendaráð verða við því eins fljótt og hægt er.
6.      Nefndir, félög og ráð.
6.1.   Eftirtaldar nefndir og félög skulu starfrækt innan NFB og skulu þær sitja í Allsherjarráði. Í hverri nefnd eru að meðaltali fimm manns, fjórir kosnir á kjördegi, nema annað sé tekið fram, og einn – tveir nýnemar að hausti. Lausar stöður í nefndum skulu auglýstar á haustönn.
6.2.   Leiklistarfélagið Aristófanes.
6.2.1.      Leiklistarfélagið Aristófanes skal sjá um að fjölbreytt leiklistarstarfsemi sé innan NFB.
6.2.2.      Leiklistarfélagið Aristófanes skal sjá um uppsetningu leikrits/söngleiks NFB í samstarfi við Árshátíðarnefnd.
6.2.3.      Frumsýning leikrits skal haldin á árshátiðardag.
6.2.4.      Leiklistarfélagið Aristófanes hefur leyfi til að frumflytja útvarpsleikrit í árshátíðarviku á meðan útvarpið er starfandi. Leikritið skal tekið upp fyrir frumflutning til að minnka áreiti á Leiklistarfélaginu í árshátíðarviku.
6.3.   Árshátíðarnefnd.
6.3.1.      Árshátíðarnefnd skal aðstoða Leiklistafélagið Aristófanes við uppsetningu leikrits/söngleiks NFB.
6.3.2.      Árshátiðarnefnd skal sjá um skipulagningu árshátíðar í samstarfi við skemmtinefnd og nemendaráð.
6.4.   Málfundarfélagið Megas.
6.4.1.      Málfundarfélagið Megas skal sjá um að halda reglulega málfundi.
6.4.2.      Málfundarfélagið Megas skal sjá um að ráða þjálfara í Morfís og sjá um inntökupróf í liðið í samráði við þjálfara.
6.4.3.      Málfundarfélagið Megas sér um að halda innanskólakeppnir í mælsku og spurningarkeppnum til að efla áhuga og dugnað meðlima NFB.
6.4.4.      Málfundarfélagið Megas getur gengið að Gettu betur liðinu og fengið allar upplýsingar um t.d. keppendur, þjálfara, keppnishald o.fl. mikilvægt.
6.4.5.      Málfundarfélagið Megas skal aðstoða Styrktarfélagið Mo’Money í styrktarsöfnun fyrir Gettu betur og Morfís. Auk þess skal málfundafélagið útvega skemmtiatriði fyrir sjónvarpsútsendingu Gettu betur.
6.5.   Íþróttanefnd.
6.5.1.      Íþróttanefnd sér um að innan skólans sé sterk og fjölþætt íþróttastarfsemi.
6.5.2.      Íþróttanefnd skipuleggur keppnir innan skólans og við aðra skóla.
6.5.3.      Íþróttanefnd sér um skipulagningu íþróttahátíðar NFB.
6.5.4.      Íþróttanefnd hefur umsjón yfir viðburðum FB í íþróttavakningu framhaldsskólanna hvert ár.
6.5.5.      Íþróttanefnd skipar fyrirliða NFB á íþróttavakningu hvert ár.
6.5.6.      Íþróttanefnd hefur umsjón yfir Framhaldsskólahreysti fyrir hönd NFB.
6.6.   Ljósmyndanefnd.
6.6.1.      Ljósmyndanefnd skal senda einn til tvo fulltrúa á allar skemmtanir á vegum NFB, endurgjaldlaust svo framarlega sem þeir séu að sinna sínu starfi.
6.6.2.      Ljósmyndanefnd skal sjá um myndasíðu nfb.is í samráði við vefráð.
6.7.   Ritnefnd.
6.7.1.      Ritnefnd skal sjá um útgáfu skólablaðs NFB.
6.7.2.      Blaðið skal koma út a.m.k. einu sinni á skólaári, þ.e. vikuna eftir páskafrí.
6.7.3.      Blaðið skal vera tengiliður Allsherjarráðs við félagsmenn.
6.7.4.      Blaðinu skal dreift frítt meðal félagsmanna.
6.7.5.      Formaður ritnefndar er sjálfskipaður ritari nemendafélagsins og sér um að skrá fundagerðir á FES fundum og senda á alla í FES strax að loknum fundi.
6.7.6.      Ritari skal prenta út fundagerðir eftir hvern fund og setja í þar til gerða möppu sem verður í nemendaráðsherberginu.
6.8.   Skemmtinefnd.
6.8.1.      Formaður nefndarinnar er skemmtanastjóri og situr hann í nemendaráði.
6.8.2.      Skemmtinefnd skal sjá um skipulagningu dansleikja.
6.8.3.      Skemmtinefnd skal sjá um skipulagningu nýnemakvölds á haustönn.
6.8.4.      Skemmtinefnd skal sjá um skipulagningu árshátíðar í samstarfi við árshátíðarnefnd og nemendaráð.
6.8.5.      Skemmtinefnd skal einnig hafa yfirumsjón með öðrum skemmtunum á vegum NFB þ.á.m. skemmtikvöld.

6.8.6.    Varaformaður skemmtinefndar skal sitja á FES fundum ásamt skemmtanastjóra.
6.9.   Nýnemanefnd.
6.9.1.      Nýnemanefnd starfar fyrir nýnema til að skapa öflugra félagslíf sem höfðar frekar til þeirra aldurshóps.
6.9.2.      Þó eru allir viðburðir á vegum Nýnemanefndar opnir fyrir alla meðlimi NFB.

6.9.3    Nýnemanefnd skal hjálpa við skipulagningu viðburða NFB ef þörf er á.
6.10.  Auglýsinganefnd.
6.10.1.  Auglýsinganefnd skal sjá um að auglýsa og markaðssetja atburði og skemmtanir NFB innan skólans.
6.10.2.  Auglýsinganefnd skal sjá um að auglýsa og markaðssetja atburði og skemmtanir NFB innan skólans.
6.10.3.  Auglýsinganefnd skal sjá um að halda auglýsingatöflum í góðu ásigkomulagi.
6.11.  Videonefnd.
6.11.1.  Videonefnd ber ábyrgð á tækjum og efni videonefndar.
6.11.2.  Videonefnd skal sjá um upptökur á því helsta sem gerist í félagslífi NFB.
6.11.3.  Videonefnd skal sjá um gerð og sýningar fréttaþátta úr félagslífnu. Þar skal einnig auglýst það sem er helst er á döfinni í samstarfi við auglýsinganefnd.
6.11.4.  Tæki þau og fylgihlutir sem teljast til videonefndar skulu eingöngu notuð af nefndarmeðlimum. Óski hinsvegar einhver eftir afnotum af aðstöðu eða tækjum videonefndar utan hefðbundinna verkefna, þarf samþykki nemendaráðs, sem er tekið í samráði við formann videonefndar.
6.11.5.  Með öllu er óheimilt að lána út efni sem videonefnd hefur til umráða.
6.11.6.  Videonefnd býr til annál ár hvert sem sýndur er við árshátíðarkvöldverð nemendafélagsins.
6.12.  Styrktarfélagið Mo’ Money.
6.12.1.  Styrktarfélagið Mo’ Money sér um að safna styrkjum fyrir alla viðburði NFB sem þurfa á því að halda, þ.e. leikrit, útvarp og söngvakeppni o.fl.

6.12.2.    Styrktarfélagið Mo’ Money sér um að útvega samninga sem hagnast NFB í samráði við nemendaráð.
6.13.  Vefráð.
6.13.1.  Formaður vefráðs er vefstjóri.
6.13.2.  Vefráð hefur umsjón með vefsíðu NFB www.nfb.is og öllum vefsíðum á vegum NFB.
6.13.3.  Vefstjóri situr á FES fundum og skrifar niður það sem um er rætt. Samdægurs setur hann svo fréttir á nfb.is um það sem er framundan í félagslífinu.
6.13.4.  Vefráð skal sjá til þess að allar upplýsingar um félagslífið sé að finna á vefsíðu nemendafélagsins, þ.á.m. viðburðadagatal og fréttir, dagsetningar fyrir alla ákveðna viðburði, miðaverð á böll, upplýsingar um leikrit, contact-upplýsingar um nemendaráð og nefndir o.s.frv.
6.14.  Tónlistarnefnd.
6.14.1.  Formaður Tónlistarnefndar er útvarpsstjóri.
6.14.2.  Skank FM er rekið einu sinni til tvisvar á skólaári en starfsemi Tónlistarnefndar skal hefjast á haustönn.
6.14.3.  Að miklu þarf að huga í undirbúningi Skank FM og skal Tónlistarnefnd hefja auglýsingasölu og markaðssetningu í samráði við markaðsstjóra strax á haustönn.
6.14.4.  Tónlistarnefnd sér um alla viðburði NFB tengdum tónlist.
6.15.  Sæludaganefnd.
6.15.1.  Sæludaganefnd skal sjá um skipulagningu sæludaga.
6.15.2.  Sæludagar eiga að vera haldnir á vorönn, dagana fyrir árshátíð.
6.15.3.  Sæludaganefnd skal hefja undirbúning í samstarfi við markaðsnefnd á haustönn.
6.15.4.  Sæludaganefnd sér einnig um aðra þemadaga á vegum NFB, s.s. Ghettóviku og fleiri þemadaga.
6.16.  Nördanefnd.
6.16.1.  Nördanefnd skal sjá um að efla spilamennsku innan NFB.
6.16.2.  Nördanefnd sér um að halda alls kyns spilamennsku uppi í NFB hvort sem um borðspil, leikspil eða tölvutengd spil er að ræða.
6.16.3.  Nördanefnd sér um að halda kennslu fyrir stór spil sem þeir hyggjast vera með.

6.16.4.    Nördanefnd heldur fjölbreytt videokvöld mánaðarlega.

6.16.5.    Nördanefnd skal skipuleggja LAN minnst einu sinni á skólaári.

6.17.    Stríðsnefnd.

6.17.1.     Stríðsnefnd sér um að klappliðsæfingar verði haldnar í hverjum þeim keppnum sem NFB tekur þátt í með fyrirvara og skal taka virkan þátt í klappliðinu.

6.17.2.       Stríðsnefnd skipuleggur allt það sem snýr að yfirburðum Fjölbrautaskólans í Breiðholti gagnvart óheppnum andstæðingi. Nefndin skal gæta orðstír skólans hvívetna.

6.17.3.       Stríðsefnd skal útnefna einn meðlim nefndarinnar Býflugu FB og skal sá hinn sami klæðast býflugnabúningi á öllum þeim viðburðum sem stríðsnefndin á þátt í.

6.17.4.    Formaður stríðsnefndar skal bera heitið Herstjóri og skulu aðrir meðlimir stríðsnefndar lúta honum með viðeigandi kveðju.

6.18.      Listanefnd.
6.18.1.      Tilgangur listanefndar er að efla félagslíf listáhugasamna nemenda í skólanum.
6.18.2.      Listanefnd skal efla áhuga hjá nemendum á myndlistabraut.
6.18.3.      Listanefnd skal halda listtengda atburði reglulega.
6.19.     Nefndir lúta stjórn Nemendaráðs.
6.20.1.  Innan hverrar nefndar skal kjósa ritara.

6.20.2.  Innan hverrar nefndar skal sitja varaformaður sem er staðgengill formanns nefnda á FES fundum.
6.21.  Nefndir skulu gera fjárhagsáætlun í byrjun skólaárs í samráði við nemendaráð . Einnig skulu formenn skila inn bókhaldi og starfsáætlun á Allsherjarráðsfundum.
6.22.  Gjaldkerum hverrar nefndar ber að tilkynna nemendaráði áður en lagt er í kostnað umfram fjárhagsáætlun. Verði þessu ekki sinnt hefur nemendaráð heimild til að útiloka viðkomandi frá öllum ábyrgðarstöðum innan nemendafélagsins.
6.23.  Ritari hverrar nefndar skal safna saman upplýsingum um starf nefndarinnar í fundargerðarbók eða gagnamöppu til hagræðingar fyrir viðkomandi nefnd.
6.24.  Fráfarandi nefnd skal halda a.m.k. einn fund með viðtakandi nefnd fyrir lok vorannar til upplýsingamiðlunar og aðstoðar.
6.25.  Meðlimum tónlistarnefndar, sæludaganefndar og árshátíðarnefndar er einnig óheimilt að taka þátt sem leikarar í árshátíðarleikriti.
7.      Rekstur og embættismenn NFB.
7.1.   Tækjavörður NFB.
7.1.1.      Tækjavörður situr í Videonefnd.
7.1.2.      Tækjavörður skal sjá um hljóðkerfi NFB og ljóskastara þá sem NFB hefur til umráða. Hann skal sjá um uppsetningu á tækjum, hljóðkerfum og kösturum fyrir uppákomur og stjórna því í samvinnu við þá sem að uppákomunni standa.
7.1.3.      Tækjavörður skal sjá um útlán og leigu á tækjum NFB og er leiguverð ákveðið af nemendaráði í samráði við tækjavörð.
7.1.4.      Tækjavörður skal útbúa lista yfir allar tækjaeigur NFB.

7.2.  Sífari.
7.2.1.  Sífari sér um öll samskipti SÍF við NFB og öfugt og situr einnig í stjórn SÍF.
7.2.2.    Sífari sér um að kunna SÍF innan NFB og sjá til þess meðlimir þess séu meðvitaðir um tilgang félagsins.
7.2.3.  Sífari verður að velja sér einn vara-Sífara sem er fær um að sjá um skyldur Sífarans í hans fjarveru.
8.      Kosningar.
8.1.   Kjörstjórn.
8.1.1.      Í kjörstjórn skulu sitja aðilar skipaðir af nemendaráði og skulu þeir starfa í samráði við það.
8.1.2.      Kjörstjórn skal sjá um skipulagningu og framkvæmd kosninga.
8.1.3.      Kjörstjórn skal sjá um að kosningaúrslit séu gerð kunn í síðasta lagi 2 virkum skóladögum eftir að kjördegi lauk.
8.2.   Kjörgengi.
8.2.1.      Kjörgengi í öllum framboðum innan NFB er háð því að frambjóðendur verði næstu tvær annir í skólanum og hafi greitt nemendafélagsgjöldin önnina sem kosningin fer fram.
8.2.2.      Formaður skal kosinn á kjördegi hvert ár. Kjörgengi er háð því að frambjóðandi sé fjárráða og hafi ekki verið sviptur sjálfræði.
8.2.3.      Varaformaður skal vera kosinn á kjördegi hvert ár. Kjörgengi er háð því að frambjóðandi sé sjálfráða.
8.2.4.      Skemmtanastjóri skal kosinn á kjördegi hvert ár. Kjörgengi er háð því að frambjóðandi sé sjálfráða.

8.2.5.    Gjaldkeri skal kosinn á kjördegi hvert ár. Kjörgengi er háð því að frambjóðandi sé sjálfráða.
8.2.6.      Fjórir skulu kosnir í hverja nefnd. Kjörgengi er háð því að frambjóðandinn hafi stundað nám við skólann í tvær annir og hafi greitt nemendafélagsgjöld önnina sem kosningar eru háðar.
8.2.7.      Sá sem hlýtur flest atkvæði í hverri nefnd er sjálfkjörinn formaður nefndarinnar. Sá sem hlýtur næstflest atkvæði er sjálfkjörinn varaformaður. Nemendaráð áskilur sér rétt til að leysa formenn frá störfum séu þeir ekki að sinna skyldum sínum.
8.2.8.      Á haustönn eru einn til tveir nýnemar teknir inn í hverja nefnd á nýnemakvöldi.
8.2.9.      Leyfilegt er að bjóða sig fram í fleiri en eina nefnd en verði sami aðilinn kosinn í tvær nefndir eða fleiri þarf hann að velja eina nefnd til að vera í. Nefndin sem hann valdi ekki tekur þá inn næsta mann í röðinni, þ.e. þann fimmta atkvæðaflesta.
8.3.   Kjördagar
8.3.1.      Kjördagar skulu vera haldnir í miðjum apríl.
8.3.2.      Kjördagar skulu vera tveir frá 9:00 – 16:00. Skal talning hefjast þegar öðrum kjördegi er lokið.
8.3.3.      Kosningar skulu vera leynilegar og bindandi. Atkvæði greitt manni sem ekki hefur gefið kost á sér er ógilt.
8.3.4.      Ef um er að ræða framboð þar sem frambjóðandi er sjálfkjörinn skal gildi já eða nei, ekki auðir seðlar. Frambjóðandi þarf að fá meiri hluta atkvæða jákvæð til að vera kjörinn.
8.4.   Ófylltar stöður.
8.4.1.      Takist ekki að fylla stöðu á kjördegi skal nemendaráð auglýsa stöðuna lausa og skipa í hana í framhaldi af því.
8.4.2.      Við brotthvarf úr embætti skal endurskoða kosningu með tilliti til frambjóðanda með næstflest atkvæði í stöðuna ellegar auglýsa stöðuna lausa.
9.      Laun.
9.1.   Hver starfandi nefndarmeðlimur skal fá einn miða á árshátíðarball. Gildir þessi liður ekki fyrir þá sem ekki geta sýnt fram á 80% mætingarskyldu. Því skulu nefndir halda fundargerðarbók sem vottar mætingu og störf nefndarmeðlima.
9.2.   Meðlimir nemendaráðs fá að fara inn á alla atburði/uppákomur á vegum NFB endurgjaldslaust. Gildir þetta hvort sem er að ræða böll eða aðrar uppákomur. Hér á einnig við 80% mætingarskylda.
9.3.   Félaginu er óheimilt að greiða laun til nemenda fyrir vinnu aðra en þá sem lögin kveða um nema það sé samþykkt á Allsherjarráðsfundi og ef nemandi er ekki í NFB.
9.4.   Í lok hverrar vorannar eða lok starfsárs nemendaráðs hefur nemendaráð leyfi til að fara út að borða á kostnað nemendafélagsins fyrir upphæð sem nemur 5.000 kr, á hvern nemendaráðsmeðlim.
10.     Sjóðir
10.1.  Alla sjóði NFB skal geyma á bankareikningi.
10.2.  Nemendasjóður er myndaður af félagsgjöldum nemenda. Hann skal notaður til að standa undir kostnaði við hagsmunastörf og til að styrkja og fjármagna félagslíf skólans. Nemendasjóðurinn er í gæslu gjaldkera NFB, formanns og rekstrarstjóra FB.
10.3.  Allt bókhald skal sent löggiltum endurskoðanda til yfirferðar.
11.     Lög
11.1.   Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi eða á aukaaðalfundi.
11.2.   Lög NFB skulu vera kynnt fyrir nýju Nemendaráði og formönnum nefnda á fyrsta FES fundi haustannar.
11.3.  Lagatilbreytingatillögur skulu berast nemendaráði tveimur dögum fyrir aðalfund. Þær skulu settar upp á auglýsingatöflur, nemendum til kynningar og liggja til sýnis. Á aðalfundi skulu einungis löglega framkomnar tillögur vera til umfjöllunar. Til að lagabreytingatillögur öðlist gildi þarf samþykki helmings fundarmanna.
11.4.  NFB verður ekki lagt niður nema með samþykki á tveimur löglega boðuðum aðalfundum í röð, þá með 4/5 hlutum greiddra atkvæða eða meira í bæði skiptin. Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg. Fyrri aðalfundur mun ákveða afdrif þegna NFB, en sú ákvörðun mun þó ekki taka gildi fyrr en á seinni aðalfundi, samþykki sá fundur einnig slit félagsins. Lagt er til að fundargerðir og önnur gögn NFB sem ekki flokkast undir trúnaðarmál verði sett í varðveislu á Landsbókasafni. Skjölum varðandi trúnaðarmál ber að eyða í endurvinnslu.
11.5.  Lög þessi öðlast þegar gildi og eru önnur lög félagsins þar með úr gildi nema annað sé tekið fram sérstaklega.

Reykjavík 21. september 2011