Er blogg málið ?

Er eitthvað gáfulegt að hafa mikið af upplýsingum hérna sem tengist ekki NFB á heimasíðunni ?

Ef þið hafið einhverjar leikja óskir fyrir Sæludaga LANið, endilega skrifa í “Comments”. Verða að vera LAN leikir, leikir sem tengjast út á netið virka ekki á Sæludaga LANinu því þá erum við að nota tölvur skólans.

Árshátið FB & Sæludagar

Árshátið FB verður 8. mars, á undan Árshátiðinni eru sæludagar þar sem nemendur fá að gera margt skemmtilegt í staðinn fyrir að mæta í tíma. Fáein fjarvistarstig eru feld niður fyrir mættingar á sæludögum.

HÖNNUNARNÁM Í ALÞJÓÐLEGUM FAGHÁSKÓLUM

Hönnun, miðlun, sjónlistir, stjórnun og tízka.
Fulltrúar frá Lingo í Reykjavík og IED á Ítalíu verða með kynningu á hönnunarnámi erlendis.
Staðsetning: SUNNUSALUR
Tími: 7. febrúar kl. 12:15 – 13:00

Einnig verður kynning á Kaffi Sólon, Bankastræti 7a, Fimmtudag 9. feb. kl. 17:00-19:00
Hönnunarnám

Auka-Aðalfundur

Sunnusal 30. Janúar 18:00

Aðalfundur félagsins er æðsta vald félagsins.

Rétt til setu á aðalfundi félagsins með kosningarétt eru allir meðlimir NFB sem hafa lokið að minnsta kosti einni önn, nema viðkomandi sé nýnemi sem hefur verið tekinn í nefnd eða gegnir öðru embætti.

Helstu aðalfundarstörf eru:
Kosning fundarstjóra og ritara.
Skýrsla nemendaráðs.
Skýrsla nefnda.
Ályktanir.
Lagabreytingar
Að nemendafélagið ákveði nemendafélagsgjöld.
Önnur mál.

Morfís FB – MÍ

Ræðukeppninn sem fór fram í kvöld í matsal FB endaði á þann hátt að FB hafði Ræðumann kvöldsins með 495 stig af 2093 samtals og var það Davíð Þór “Kóngur” Katrínarson.

Var þetta Fjölbrautaskólinn í Breiðholti á móti Menntaskóla Ísafjarðar og var FB á móti að “Fólk er heimskt”. Andmælendunir MÍ unnu keppnina hinsvegar. Svo þarna höfum við það, við erum öll heimsk.

LOTR

Lord of the Rings : The Fellowship of the Ring

Verður sýnd í Sunnusal þann 2. nóv, Miðvikudaginn.

Ekki missa af henni því næstu miðvikudaga eftir verða hinar sýndar!

Horfðu á allar þrjár í Sunnusalnum með vinum og samnemendum.