Auka-Aðalfundur

Sunnusal 30. Janúar 18:00

Aðalfundur félagsins er æðsta vald félagsins.

Rétt til setu á aðalfundi félagsins með kosningarétt eru allir meðlimir NFB sem hafa lokið að minnsta kosti einni önn, nema viðkomandi sé nýnemi sem hefur verið tekinn í nefnd eða gegnir öðru embætti.

Helstu aðalfundarstörf eru:
Kosning fundarstjóra og ritara.
Skýrsla nemendaráðs.
Skýrsla nefnda.
Ályktanir.
Lagabreytingar
Að nemendafélagið ákveði nemendafélagsgjöld.
Önnur mál.

Morfís FB – MÍ

Ræðukeppninn sem fór fram í kvöld í matsal FB endaði á þann hátt að FB hafði Ræðumann kvöldsins með 495 stig af 2093 samtals og var það Davíð Þór “Kóngur” Katrínarson.

Var þetta Fjölbrautaskólinn í Breiðholti á móti Menntaskóla Ísafjarðar og var FB á móti að “Fólk er heimskt”. Andmælendunir MÍ unnu keppnina hinsvegar. Svo þarna höfum við það, við erum öll heimsk.

Söngkeppni FB

Skráning fyrir Söngkeppni FB er í fullum gangi.

Skráningarblöð hanga á auglýsingatöflunni fyrir framan Matsalinn!

LOTR

Lord of the Rings : The Fellowship of the Ring

Verður sýnd í Sunnusal þann 2. nóv, Miðvikudaginn.

Ekki missa af henni því næstu miðvikudaga eftir verða hinar sýndar!

Horfðu á allar þrjár í Sunnusalnum með vinum og samnemendum.

Atlantsolía

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Atlantsolía hafa gert samning um afsláttarkjör fyrir nemendur í Fjölbrautaskólanum.

Nemendum FB sem kjósa að kaupa sitt eldsneyti hjá Atlantsolíu býðst nú afsláttur sem hér segir:


Fastur 4 kr. afsláttur pr. lítra
á öllum AO stöðvum.

Staðbundin tilboð á AO stöðvum bætast ofan á boðinn afslátt
Á afmælisdegi dælulyklahafa veitir dælulykilinn nemendum 10 kr í afslátt.

Gildir ekki með öðrum tilboðum svo sem 5 kr. Atlantsolíudagar, eða með öðrum sérkjörum hjá hagsmuna- eða aðildarsamtökum.

Sækja þarf um dælulykil eða uppfæra dælulykil á síðu Altantsolíu, getur klikkað á AO merkið til hægri eða þennan link.

Ghettóball NFB

Flottasta ghettóballið.
Á staðnum verða XXX Rottweiler hundar, emmsjé Gauti, 7Berg, Dóri DNA og Intro Beats.

2000 kr. fyrir FBinga

2500 kr. fyrir Gesti

Ballið stendur frá 22:00 – 1:00 fimmtudaginn 3.nóvember, húsið lokar kl.23:00.

FB-LAN!

Við í FB ætlum að halda eitt gífurlega skemmtilegt LAN í boði nördanefndarinnar sem verður haldið það 14. til 16. Október í matsalnum. LAN-ið opnar á slaginu 18:00 og mun endast til 10:00 á sunnudegi.

Það sem þarf að hafa með sér er þín eigin talva, fjöltengi, LAN-snúru, heyrnatól. Ekki gleyma power-snúrunni.

Það verður spilað leiki að eigin vali, eingir sérstakir leikir. Fjöldi leikja verður hægt að ná í á staðnum til að spila saman með öðrum, líka er hægt að spila leikina sem þú ert með í tölvunni þinni.

Það mun vera skráning í miðasölu FB til að komast á LAN-ið og líka þegar opnar. Gestir skrá sig Facebook síðunni um lanið og þeir þurfa borga 500 kr. við innganginn þegar allt byrjar, muna að nemendur FB hafa forgang. Þetta er okkar annað LAN og viljum hafa allt skipulagt og halda þetta oftar.

Þeir sem eru yngri en 18 ára þurfa að koma með leyfisbréf frá foreldrum sem er afhent í miðasölunni.